TRÍÓ

Guitar Islancio

Björn Thoroddsen – gítar
Jón Rafnsson – bassi
Þórður Árnason – gítar
Gunnar Þórðarson – gítar

Gítarleikararnir Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson stofnuðu tríóið Guitar Islancio haustið 1998 ásamt Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara. Tríóið hefur, allt frá stofnun, notið mikilla vinsælda, haldið fjölda tónleika og komið fram á tónlistarhátíðum bæði hér á Íslandi og erlendis, m.a. í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi, Lettlandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada, Japan, Kína og á Spáni.

Guitar Islancio hefur gefið út fimm geisladiska sem allir hafa fengið mjög góðar viðtökur og náði fyrsti diskurinn, “Guitar Islancio” gullsölu, og sá diskur ásamt “Guitar Islancio III” voru tilnefndir til íslensku tónlistarverðlaunanna sem jazzdiskar ársins. Á “Scandinavian Songs” leika þeir þjóðlög frá öllum Norðurlöndunum, Færeyjum og Grænlandi, en sá diskur var gefinn út í Japan. “Connections” kom út í Kanada árið 2001 og inniheldur 15 lög sem öll er að finna á fyrstu þrem diskum tríósins. Á þessum diski kveður við nýjan tón, því með þeim leikur vestur-íslenski trompetleikarinn Richard Gillis.
Diskurinn kom út á Íslandi árið 2005 sem  “Icelandic Folk”.

Haustið 2010 kom út safndiskurinn “Best of” sem hefur að geyma 15 valin þjóðlög af fyrrnefndum diskum auk nýrrar útgáfu af Tangó eftir Björn Thoroddsen, sem upphaflega kom út á “Guitar Islancio II”.

Geisladiskurinn “Þjóðlög” kom út árið 2017 og inniheldur 14 lög af fyrri diskum tríósins og að auki, áður óútgefna útgáfu af “Á Sprengisandi” eftir Sigvalda Kaldalóns. Árið 2019 kom út bókin “Íslensk þjóðlög í útsetningum Guitar Islancio” sem inniheldur 22 þjóðlög á nótum með hljómum fyrir gítar og píanó, ásamt ýmsum fróðleik um lögin. Allur texti í bókinni er á þrem tungumálum; íslensku, ensku og þýsku. Vinylplata með 12 þjóðlögum sem öll hafa komið út á geisladiskum tríósins, kemur út í ársbyrjun 2022.

Fjölmargir þekktir tónlistarmenn hafa leikið með Guitar Islancio, m.a franski fiðluleikarinn Didier Lockwood, franski gítarleikarinn Sylvain Luc, danski klarinettuleikarinn Jørgen Svare og danski fiðluleikarinn Kristian Jørgensen, sænski gítarleikarinn Ulf Wakenius, sænski saxófónleikarinn Jonas Knutsson, japanski gítarleikarinn Kazumi Watanabe, belgíski gítarleikarinn Philiph Catherine, bandaríski gítarleikarinn Larry Coryell og kanadíski (vestur-íslenski) trompetleikarinn Richard Gillis, en hann leikur einnig með þeim á geisladiskinum Icelandic Folk, – útg. í Kanada undir nafninu Connections.

Tónleikadagskrá tríósins er skemmtileg blanda af frumsömdu efni, íslenskum þjóðlögum og sígildum jazzlögum og stemning á tónleikum mikil, enda tríóið rómað fyrir kraftmikla og líflega spilamennsku og ber því virkilega nafn með rentu, en orðið Islancio er úr ítölsku tónlistarmáli og þýðir ákafi eða ofsi; – að leika með ákafa = con islancio. Hljómur orðsins minnir einnig óneitanlega á Ísland og því er nafnið í senn bæði músíkalskt og „íslenskt“.

Þeir Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson skipa Guitar Islancio í dag, en Þórður Árnason, gítarleikari, hefur leikið með þeim síðastliðin ár í forföllum Gunnars Þórðarsonar.