Íslensk þjóðlög í útsetningum Guitar Islancio – Bók (JRBK019)

Bókin inniheldur 22 íslensk þjóðlög á nótum og með hljómum fyrir gítar og píanó. Ljóðatexti undir laglínu gefur til kynna hvaða hluti lagsins er sjálft þjóðlagið og hvað er viðbót Guitar Islancio. Notandi er því ekki bundinn af útsetningu tríósins, en þarna er hægt að fá ýmsar hugmyndir um útfærslu á tónlistinni. Og þetta er ekki bara nótnabók. Mikinn fróðleik um lögin er að finna í bókinni, eiginlega allt sem vitað erum um þau og hugsanlegan uppruna þeirra og auk allra ljóða í fullri lengd. Bókin hefur því mikið upplýsinga- og varðveislugildi.

Allur texti í bókinni er á þrem tungumálum; íslensku, ensku og þýsku.

  1. Austan kaldinn á oss blés
  2. Á Sprengisandi
  3. Á Sprengisandi (S. Kaldalóns)
  4. Bí, bí og blaka
  5. Bíum, bíum, bamba
  6. Dýravísur
  7. Ég veit eina brúði skína
  8. Fagurt galaði fuglinn sá
  9. Gilsbakkaþula
  10. Góða veislu gjöra skal
  11. Guð gaf mér eyra
  12. Hættu að gráta hringaná
  13. Kindur jarma í kofunum
  14. Krummi krunkar úti
  15. Krummi svaf í klettagjá
  16. Ólafur liljurós
  17. Sofðu unga ástin mín
  18. Stóð ég úti í tunglsljósi
  19. Sæll Jesú sæti
  20. Veröld fláa
  21. Vísur
  22. Þorraþræll

Fæst hjá eftirtöldum verslunum – í verslun og netverslun:

ÍSLAND
Tónastöðin, Skipholti 50d, Reykjavík – NETVERSLUN
Lucky Records, Rauðarárstíg 10, Reykjavík – NETVERSLUN
Hljóðfærahúsið, Síðumúla 20, Reykjavík
Hljóðfæraverslunin Rín, Grensásvegi 12, Reykjavík
Penninn Akureyri

SVÍÞJÓÐ
Notlagret, Borås  – NETVERSLUN
Gottfrid Johansson Musik AB,  Stockholm – NETVERSLUN

ÞÝSKALAND
Pankebuch, Berlin – NETVERSLUN
Bunt Buchhandlung, Köln – NETVERSLUN
Hrímnir, Frankfurt – NETVERSLUN

Einnig hægt að panta hjá jon@jrmusic.is   kr. 5.000,- + sendingarkostnaður

Frá stofnun tríósins Guitar Islancio árið 1998 hafa Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson lagt mikla rækt við þjóðlögin sem hafa verið spiluð og sungin í gegnum aldirnar. Þjóðlög eru órjúfanlegur hluti af menningararfinum sem tríóið nálgast  af nærgætni og virðingu. Þremenningarnir spinna við lögin, einfaldar laglínur fá á sig nútímalegan blæ sem er í senn íslenskur og alþjóðlegur.