Gunnar Þórðarson
Hann hefur samið hátt í 800 lög sem hafa verið gefin út á hljómplötum, auk tónlistar við fjölda kvikmynda, söngleikja og leikverka.
Gunnar hefur stjórnað upptökum og útsett tónlist á fjölda hljómplatna.
Á síðustu árum hefur hann snúið sér að tónsmíðum og útsetningum stærri verka meðal annars fyrir sjónvarp, kvikmyndir, leikhús, kóra og sinfóníuhljómsveitir.
Óperan Ragnheiður eftir Gunnar sem byggð er á sögu Ragnheiðar Brynjólfsdóttur í Skálholti var frumflutt árið 2013 og hlaut einróma lof gagnrýnenda víða um heim.
Gunnar er einn virtasti tónlistarmaður landsins. Honum hafa hlotnast ýmsar viðurkenningar á ferlinum og var m.a. valinn borgarlistamaður Reykjavíkur 2014 og heiðurslistamaður Alþingis 2018.
Gunnar var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu árið 2009.